A-Got

2. Nóvember.2022 komu 7 kríli í heiminn. 4 stelpur og 3 strákar.

Við héldum eftir á Byl og Míu


Tara's Tornado And Fame Is My Name - Elding

Eigendur - Fjölnir og Margrét

Tara's Tornado Arctic Fame - Trixie


Eigendur - Beta Ósk, Sigríður og ræktandi

Tara's Tornado Almost Famous - Stormur

Eigendur - Hrafnhildur og Kristin Maria Cairo

Tara's Tornado Anyway I'm Famous - Björgvin

Eigandi - Guðmunda

Tara's Tornado All About The Fame - Ronja

Eigandi - Elísabet Ósk og fjölskylda

Tara's Tornado Aiming For Fame - Bylur 

Fóðurheimili - Ingibjörg og Brynjar. Eigandi - Tara's tornado

Tara's Tornado Always Fabulous And Famous  - Mía

Fóðurheimili - Stefanía og Nonni Eigandi - Tara's Tornado.

Foreldrar hvolpana eru -

CIB NORDICCH ISCH ISjCH RW-21 NLM Pet Pursuit hall of fame eða hún Tesla okkar. 

Tesla var augnskoðuð án athugasemda
DNA sýni tekið og er hún ekki beri af arfgengumsjúkdómum.
Hjartahlustuð án athugasemda
Hnéskeljar gráðaðar 1/1

Tesla hefur einnig gert það gott á sýningum og er með alla þá titla sem hægt er að fá hérlendis ásamt því að vera stigahæðsti Silky Terrier á íslandi 2020 og 2021.

Tesla er líka rauða kross hundur og æfir hundafimi.

C.I.B, BALT JCH, BG GR JCH, BG JCH, BY GR JCH, BY JCH, EST JCH, GR JCH, HU JCH, LT JCH, LU JCH, LV JCH, RO JCH, SK JCH, AL CH, AL GR CH, BALT CH, EST CH, KV CH, KV GR CH, LT CH, LV CH, SE CH, ATJW-19, GRJW-19, LTJW-19, MEDITJW-19, SKJW-19 Pet Pursuit Inside Out eða hann Late

Late var augnskoðuð án athugasemda
DNA sýni tekið og er hann ekki beri af arfgengum sjúkdómum.
Hjartahlustuð án athugasemda
Hnéskeljar gráðaðar 0/0 

Late kemur frá Finnlandi í heimsókn hingað til íslands en hann hefur átt gott gegni einnig á sýningum. Hann er einnig í hundafimi og með ljúfasta skap sem ég hef kynnst

Late og Tesla

Þau eru bæði mjög skapgóð og frekar auðveld að búa með. Eru ekkert að æsa sig yfir öðrum hundum heldur eru frekar stabíl í skapi, allavega er fátt sem kemur þeim úr jafnvægi. Þau búa bæði hjá mér ásamt Tindru, kærastanum mínum og syni, eru þau mjög varkár í kringum strákinn en finnst fátt skemmtilegra en þegar hann kemur heim úr leiksskólanum og fer að leika við þau. Þau eru bæði hörkudugleg og fara létt með krefjandi fjallgöngur og eru bæði óhrædd við að skíta sig út eða synda. Þau eru frekar nægjusöm og líka sátt með stuttan göngutúr í hverfinu. þau eru þó alltaf tilbúin í hvaða ævintýri sem maður býður þeim uppá. 

Late er sjarmur, mjög opinn persónuleiki, alltaf glaður og ELSKAR alla sem hann hittir. Hann veit ekki hvað persónulegt rými er og vill helst alltaf vera með þér alveg sama þó það sé fjallganga eða klósettferð. Hann elskar klapp og kúr og kjass. Hann er einnig mjög meðtækinlegur við þjálfun og vill allt gera fyrir þig. Hann getur verið óttalegur klaufi og misreiknað sig td þegar hann er að hoppa en stökkkrafturinn hans er gríðalegur. Hann er ljúfasta blóm við menn og börn. Hann hafði aldrei búið með börnum fyrr en hann kom til mín en hann og sonur minn eru bestu vinir

Tesla er hæglátari en Late en lætur samt vel vita af sér. Hún elskar athygli og vill fá alla athyglina óskipta. Inni fer mjög lítið fyrir henni en úti þá fer sko fyrir henni. Hún er svolítill þrjóskupúki eins og tegundin er og sér ekki tilgang í því að hlýða mér í einu og öllu heldur er hún frekar sjálfstæð og fer sínar eigin leiðir. Hún er mjög félagslynd og lyndir vel við flesta hunda, menn og börn. Hún er brussa og stóran persónuleika sem ég elska. Tesla hefur einnig verið lánuð í auglýsingar fyrir símann.

© 2021 Tara's Tornado 
Powered by Webnode
Create your website for free! This website was made with Webnode. Create your own for free today! Get started