CIB NORDICCH RW-21 ISCh ISJCh NLM Pet Pursuit Hall of Fame - Tesla

  • Pet Name: Tesla
  • Sex: Female
  • Breed: Australian Silky Terrier
  • Color: blue & tan
  • D.O.B: 15,09,2017
  • Breeder: Pet Pursuit, Finland
  • Owner: Maríanna Magnús - Tara's Tornando
  • Teeth: SCISSOR BITE
  • Titles:

    C.I.B ISCH ISJCH NORDICCH NLW RW-21

MyDogDNA DNA Testing Complete. Health results show all clear. - Niðurstöður

Tesla er alger nautnaseggur og veit fátt betra en góður blundur og  mallaklór. Það fer mjög lítið fyrir henni innan dyra og heyrist mjög sjaldan gelt í henni nema auðvitað ef að nágrannakötturinn ætlar eitthvað að skoða hennar garð.
Tesla er mjög góð í samskiptum við aðra hunda og les vel í aðstæður sem hefur gert henni kleift að leika við hunda og ná af þeim dóti sem enginn annar hundur hefur getað.

Tesla er einnig mjög mannelsk og athyglissjúk og leiðist ekkert í sviðljósinu. Það gæti verið ein af ástæðanum fyrir að henni hefur gengið mjög vel á sýningum. Þar sem hún er svo montinn með sig. Einnig hefur hún leikið í stórri auglýsingu fyrir Símann 2021 og er hún rauða kross hundur.


Ættartré Teslu:

Uppruninn

Pet Pursuit Hall Of Fame

Tesla kemur frá Pet Pursuit í Finnlandi. 
Er hún afrakstur margra ára drauma og vinnu hjá mér við að finna silky terrier til að flytja inn til Ísland.
Þegar mér bauðst Tesla þá sagði ég hiklaust já og fór á stað í undirbúning. Í ættinum hjá Teslu er að finna marga meistara og suma sem ég hafði fylgst með á sýningum úti og var ég því mjög ánægð með að geta fengið úr þessari línu.

Mamma hennar Teslu er lítið sýnd en bakvið hana eru gríðalega flottir hundar, eins hef ég hitt hana og er hún mjög lík Teslu í skapi og útlit.
Pabbi Teslu Benjy kemur frá bretlandi og hafa afkvæmi hans komið vel út.
Jenna er ræktandinn hennar


Myndir - Photos

© 2021 Tara's Tornado 
Powered by Webnode
Create your website for free! This website was made with Webnode. Create your own for free today! Get started